Innlent

Rösklega fimm þúsund hafa kosið - fyrstu tölur í beinni á Stöð 2 og Vísi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Valhöll við Háaleitisbraut. Mynd/ Pjetur.
Valhöll við Háaleitisbraut. Mynd/ Pjetur.
Rúmlega 5200 manns höfðu kosið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um klukkan hálffimm í dag, samkvæmt upplýsingum frá Sigurbirni Magnússyni, formanni kjörstjórnar. Sigurbjörn segir að fjöldi kjósenda geti farið upp fyrir 7000 manns.

Mikil spenna ríkir um það hver hreppir annað sætið á lista sjálfstæðismanna fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, en fimm manns gefa kost á sér í það. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri hefur hins vegar ein óskað eftir fyrsta sætinu.

Fyrstu tölur úr prófkjörinu verða lesnar upp um klukkan hálfsjö í kvöld og verður sýnt beint frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 sem eru að sjálfsögðu líka sýndar á Vísi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×