Innlent

Unnið fram á nótt undir Eyjafjöllum

Ólafur Eggertsson tók þessa mynd af Svaðbælisá í gær.
Ólafur Eggertsson tók þessa mynd af Svaðbælisá í gær. MYND/'Ólafur Eggertsson

Stórvirkar vinnuvélar unnu langt fram á nótt við að dýpka farveg Svaðbælisár undir Eyjafjöllum en þar fór að flæða yfir veginn í gærkvöldi og sömuleiðis við brúnna yfir Holtsá.

Að sögn lögreglu nú í morgun er ekki að sjá skemmdir á vegunum við fyrstu sýn, en Vegagerðin mun kanna það nánar. Ekki er vitað til að neinir vegfarendur hafi lent í vandræðum í gærkvöldi eða í nótt, enda sára fáir á ferðinni, að sögn lögreglu.

Á annað hundrað manns eru enn innlyksa í Þórsmörk, en gríðarlegur vöxtur hljóp í Krossá og Steinsholtsá í gær og urðu þær kol ófærar. Þess er vænst að fólkið komist úr Þórsmörk þegar líður á daginn.

Síðari ferð Herjólfs frá Eyjum í gær, var endanlega felld niður í gærkvöldi vegna óveðurs og sjógangs við Landeyjahöfn, en skipið siglir samkvæmt áætlun í dag.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×