Innlent

Gústav Axel er Matreiðslumaður ársins

Gústav Axel Gunnlaugsson, Matreiðslumaður ársins 2010.   Á bakvið Gústav glittir í Ara Þór Gunnarsson, aðstoðarmann hans.
Gústav Axel Gunnlaugsson, Matreiðslumaður ársins 2010. Á bakvið Gústav glittir í Ara Þór Gunnarsson, aðstoðarmann hans. Ljósm. Matthías Þórarinsson.

Gústav Axel Gunnlaugsson matreiðslumaður á Fiskfélaginu vann í gær titilinn Matreiðslumaður ársins 2010 en sigurvegarinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Vetrargarðinum í Smáralind í gær þegar Matardögunum 2010 lauk. „Annað sætið hreppti Ólafur Ágústsson og það þriðja Sigurður Kristinn Haraldsson en þeir starfa báðir á VOX," segir í tilkynningu en það er Klúbbur Matreiðslumeistara sem hefur haft veg og vanda af skipulagningu Matardaga 2010.

Þeir sem unnu verðlaun að þessu sinni eru allt ungir og tiltölulega nýútskrifaðir matreiðslumenn segir ennfremur en Gústav Axel útskrifaðist árið 2008 en auk veglegs bikars hlaut hann í verðlaun gjafabréf frá bæði Icelandair og Hilton Nordica Hóteli.

„Það er mikill heiður fyrir mig að hljóta þessa viðurkenningu, en Matreiðslumaður ársins er í raun Íslandsmeistaratitillinn í okkar stétt! Þetta er vissulega hvatning fyrir mann til að halda áfram að gera vel og þróa færni sína!" segir nýkrýndur Matreiðslumaður ársins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×