Þráinn selur Fischersundið 23. janúar 2010 06:00 Sér eftir húsinu Holdið flytur en andinn verður eftir í Fischersundinu, segir Þráinn Bertelsson sem hefur sett hús sitt við götuna á sölu.Fréttablaðið/Valli „
Þetta er bara ákvörðun sem við höfum dregið mjög lengi en gátum ekki beðið með. Konan mín er með Parkinson-sjúkdóminn og svo erum við víst bæði að verða eldri," segir Þráinn Bertelsson, óháður þingmaður og rithöfundur, en hann hefur sett hið sögufræga hús sitt við Fischersund 3 á sölu. Húsið er á þremur hæðum og er rúmir 250 fermetrar. Samkvæmt fasteignalýsingu var það byggt 1874 og stækkað árið eftir. Árið 2004 voru síðan gerðar miklar endurbætur á húsinu og heppnuðust þær það vel að Reykjavíkurborg veitti því sérstaka viðurkenningu fyrir vel heppnaða endurbyggingu á gömlu húsi með menningarsögulegt gildi. Þráinn og Sólveig hafa búið í húsinu í tæpa tvo áratugi og segir þingmaðurinn þann tíma hafa verið góðan tíma. Og telur að þótt holdið flytji verði andinn eftir í Grjótaþorpinu. „Það er alveg rosalega góður andi í húsinu en mér fannst alltaf verst að það væru engir draugar í því." Þingmaðurinn gerir sér þó engar sérstakar vonir um að húseignin seljist eins og skot. Hús í þessum stærðarflokki séu ekki beint vinsælasta eignin á fasteignamarkaðinum um þessar mundir. „Maður veit aldrei, þetta gæti tekið tvo daga, tvær vikur eða tvö ár." Þráinn segist hafa ákveðnar hugmyndir um hvar þau beri niður næst en hvort það gangi eftir verði bara að koma í ljós. - fgg
Mest lesið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Lífið Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur Lífið Bók skilað eftir 56 ára útlán Lífið Hugmyndir fyrir mæðradaginn Lífið Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Lífið Stjörnufans í sumarselskap Lífið Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Lífið Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Lífið Bakaríið í beinni útsendingu Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Hilmir Snær og Vala eiga von á stúlku Stjörnufans í sumarselskap Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Arnór Ingvi og Andrea skinu skært í sænsku konungshöllinni Sjáðu þrjátíu sekúndur af atriði VÆB í Eurovision VÆB opnar verslun í Kringlunni Reyndi við þrjár milljónir Ný heimildarmynd Attenborough sýnir eyðileggingu í höfum jarðar Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Logi og Hallveig keyptu hús í 101 Jói Fel ástfanginn, trúlofaður og fluttur í Hveragerði Háar hæðir og lágar lægðir Justins Bieber Fleiri Eurovision-farar vilja Ísrael úr keppni Sjá meira