Innlent

Semja við breskt stórfyrirtæki

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson
Íslenska fyrirtækið Iceland Beverage Company stefnir að því að hefja framleiðslu á vodka í Reykjavík innan hálfs árs og selja hann í Norður-Ameríku, á meginlandi Evrópu og í Kína.

„Við höfum unnið að undirbúningi fyrirtækisins í eitt ár. Ætlunin er að gera tegundina okkar að einu af stóru nöfnunum,“ segir Birgir Loftsson, framkvæmdastjóri Iceland Beverage Company, en fyrirtækið stofnaði hann með bróður sínum. Þeir hafa gert samkomulag við bresku fyrirtækjasamstæðuna Finnburg Switzer International og fjársterkan Breta um fjármögnun tækjakaupa og rekstur verksmiðjunnar hér. Tækjabúnaður verður smíðaður í Þýskalandi og er gert ráð fyrir að hann komi hingað til lands innan sex mánaða.

Stofnkostnaður nemur um hálfum milljarði króna og er ætlunin að framleiða milljón lítra fyrsta árið. Vodkinn verður framleiddur úr Gvendarbrunnavatni og eimaður hér en síðan fluttur í gámum til Shenzhen í Guangdong-héraði í Kína. Þar verður honum tappað á flöskur undir merkjum Glacier Fire Vodka. Viðræður standa yfir um sölu á vodk-anum í kínverskum verslanakeðjum. - jab



Fleiri fréttir

Sjá meira


×