Sveinn Andri: Ástæða til að óttast klofning í Sjálfstæðisflokknum 24. júní 2010 12:17 Sveinn Andri Sveinsson.
Sjálfstæðismenn hafa ástæðu til að óttast klofning flokksins verði tillaga um að Ísland dragi umsókn sína um aðild að Evrópusambandinu til baka borin upp á landsfundi flokksins um helgina. Þetta segir Sveinn Andri Sveinsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna. Mikill kurr er nú meðal Evrópusinnaðra sjálfstæðismanna vegna umræðu um að á landsfundi flokksins verði borin upp sú tillaga að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu verði dregin til baka. Sveinn Andri Sveinsson, fyrrverandi borgarfulltrúi sjálfstæðismanna og meðlimur í hreyfingunni Sjálfstæðir Evrópumenn segir hætt við því að tillagan gæti leitt til varanlegs klofnings flokksins. Segir Sveinn að hugmyndir um stofnun nýs stjórnmálaafls Evrópusinnaðra hægri manna hafa verið til umræðu að undanförnu vegna málsins. Hann segir að innan flokksins hafi hingað til verið rúm fyrir skoðanir Evrópusinna og þeirra sem eru mótfallnir aðild Íslands að Evrópusambandinu. Verði það lagt til að tillaga um að umsókn Íslands í sambandið verði dregin til baka sé ljóst að það muni hleypa mjög illu blóði í flokksmenn beggja fylkinga. Sveinn Andri segir að Sjálfstæðisflokkurinn megi ekki við því miðað við þá stöðu sem hann er í eftir hrun að alið sé á enn meiri klofningi. Hann segist vonast til að ekki komi til klofnings en segir mjög mikilvægt hvernig forysta flokksins heldur á málunum næstu vikur. Í leiðara Fréttablaðsins í dag fjallar Ólafur Stephenssen ritstjóri blaðsins um stöðu Sjálfstæðisflokksins í tengslum við Evrópumál. Það bendir hann á að Evrópumál séu þess eðils að þau geti klofið flokka. Slíkt hafi til að mynda gerst í norska verkamannaflokksins árið 1972.
Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Erlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Innlent Fleiri fréttir Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Þagnarbindindi í ræðustól Alþingis Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Sjá meira