Innlent

Sameiginleg nefnd stofnuð

Sameiginleg þingmannanefnd Íslands og ESB verður formlega stofnuð í dag í Þjóðmenningarhúsinu. Við það tækifæri verður rætt um samskipti Íslands og ESB, um stöðu efnahagsmála á Íslandi og sjávarútvegsstefnur Íslands og ESB. Einnig um Norðurslóðir og orkumál. Ályktað verður um aðildarviðræður Íslands og ESB í lok fundar.

Slík nefnd er ætíð stofnuð til að fylgjast með aðildarviðræðuferli umsóknarríkis og ESB, segir í tilkynningu. Í íslensku nefndinni eru átján þingmenn, helmingur þeirra er frá Íslandi.

- kóþ






Fleiri fréttir

Sjá meira


×