Innlent

Saga mistaka og fordóma

Árni Páll Árnason
Árni Páll Árnason MYND/Anton

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra bað heyrnarlausa afsökunar á langri sögu „mistaka, fordóma og forræðishyggju" sem einkennt hefði viðhorf stjórnvalda til heyrnarlausra um áratugaskeið.

Í ávarpi sem ráðherrann hélt við opnun 50 ára afmælishátíðar Félags heyrnarlausra sagði hann:

„Áratugum saman meinuðu stjórnvöld heyrnarlausum að njóta tjáskipta á því máli sem þið áttuð möguleika á að tileinka ykkur, táknmálinu. Afleiðingin varð sú að margar kynslóðir heyrnarlausra fóru á mis við þau tækifæri til þroska og menntunar sem okkur finnst öllum sjálfsagt að njóta. Einangrun heyrnarlausra varð verri en hún hefði þurft að vera." - pg








Fleiri fréttir

Sjá meira


×