Innlent

22 ökumenn undir áhrifum

Tuttugu og tveir ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu um helgina vegna aksturs undir áhrifum áfengis eða annarra fíkniefna.

Fimm þessara ökumanna höfðu áður verið sviftir ökuleyfi fyrir sambærilegar sakir. Af þessum 22 brotamönnum voru aðeins fjórar konur og ungt fólk var í miklum meirihluta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×