Fæðubótarefni í fangelsum bönnuð vegna misnotkunar 4. september 2010 07:30
Notkun fæðubótaefna í fangelsum landsins verður bönnuð frá og með næstu mánaðarmótum. Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunnar, segir að mikil umræða hafi verið um notkun slíkra efna í fangelsum ríkisins og að bent hafi verið á að ýmsir ókostir fylgi slíkri notkun. „Ástæður bannsins eru meðal annars þær að efnin eru geymd í stórum dunkum þar sem auðvelt er að fela efni sem óheimilt er að hafa í fangelsum og gera leit fangavarða erfiðari,“ útskýrir Páll. „Þá hafa ílát fyrir efnin ítrekað verið notuð til að brugga áfengi. Viss hluti efnanna hefur þau áhrif að niðurstöður þvagaprufa, sem tekin eru af föngum, mælast rangar. Framleiðendur fíkniefnaprófa hafa staðfest að svo geti verið. Loks metur Landlæknisembættið það svo að slík efni séu ónauðsynleg og geti verið skaðleg.“ Páll bætir við að í undantekningartilvikum hafi sumir fangar í gegnum tíðina orðið uppvísir að því að misnota fæðubótarefni með þeim afleiðingum að þeir hafi safnað óeðlilegum vöðvamassa og afli eftir því. Því hafi verið tekin sú ákvörðun að banna efnin að undanskildum lýsi og vítamínum. Bannið taki gildi 1. október. Þá verði bannað að selja efnin í fangelsunum eða taka við þeim eftir 15. september. Spurður hvort viðbrögð hafi borist úr fangelsunum við þessari ákvörðun segir Páll að starfsfólk þeirra hafi undantekningarlaust lýst yfir ánægju sinni með hana. Þá hafi föngum verið tilkynnt bréflega um bannið. „Sumir voru mjög ósáttir við þetta, en aðrir sýndu þessu skilning,“ segir hann. „Ég ber virðingu fyrir öllum sjónarmiðum en þetta verður hins vegar framkvæmt.“ jss@frettabladid.is
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Brotlenti í djúpu gili Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fleiri fréttir Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Sjá meira