Össur við bændur: Enginn er barinn til ásta Erla Hlynsdóttir skrifar 7. október 2010 14:00
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hvetur íslenska bændur til að taka þátt í aðildarviðræðum vegna mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandi og telur að bændur vanmeti samningsstöðu sína. „Staðreyndin er einfaldlega sú, að samningsstaða íslensks landbúnaðar er betri en þeir telja, sem ekki vilja láta á hana reyna," segir Össur í bréfi til Bændasamtakanna. Að hans mati verða fulltrúar bænda að hafa sjálfstraust til að taka þátt í samningaviðræðunum af fullum þrótti til að tryggja hag þeirra sem best. „Hvort sem okkur líkar betur eða ver, þá lifa bæði ég og forysta Bændasamtakanna í veruleika, þar sem enginn tryggir eftirá," segir Össur. Bændasamtökin skrifuðu utanríkisráðherra bréf þann 22. september þar sem óskað er eftir að staða landbúnaðar í samningaferli Íslands við ESB verði skýrð. Í því bréfi vitna Bændasamtökin í orð Jóns Bjarnassonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem hefur sagt að umsóknarferlið sé þegar hafið. Össur hefur nú svarað bréfinu Hann bendir á að enginn þekki íslenskan landbúnað jafn vel og íslenskir bændur og því sé nauðsylegt að þeirra þekkingar njóti við í aðildarviðræðunum. „Enginn er barinn til ásta, og ekki geng ég þess dulinn að leiðir kunna að skilja varðandi afstöðu til samnings að lokum. Á meðan hann er í smíðum þurfum við hins vegar að hafa kjark og innri styrk til að geta unnið saman að því að samningurinn verði sem bestur," segir hann. Össur bendir á fimm atriði sem honum finnst mikilvægt að bændur hafi í huga þegar litið er til aðildarviðræðna. Þar beri fyrst að nefna kröfuna um fæðuöryggi en innan Evrópusambandsins sé fæðuöryggi orðið forgangsatriði þegar kemur að landbúnaðarstefnu sambandsins. Í öðru lagi sé ljóst að íslenskur landbúnaður búi að sérstöku erfðamengi vegna einangrunar bústofna. Þá bendir hann á að reglur Evrópusambandsins taki sérstakt tillit til landbúnaðar sem einkennist af fábreytni í framleiðslu, líkt og sá íslenski. Fjórða atriðið er að framleiðslustuðningur sé viðurkennd leið innan sambandsins til að viðhalda smáum búum á harðbýlum svæðum. Þar að auki segir Össur að bændur megi ekki horfa framhjá þeim möguleikum sem aðild gætu skapað þeim vegna sérstöðu sinnar. „Íslenskir bændur framleiða frábærar afurðir, sem batna með ári hverju. Íslendingar munu alltaf halda tryggð við þær - einsog dæmið af grænmetinu sýnir. En aðild gæti jafnframt skapað íslenskum bændum nýja og sterka möguleika á hágæðamörkuðum Evrópu," segir Össur. Bréf Össurs til Bændasamtakanna má lesa í heild sinni á vef utanríkisráðuneytisins.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira