Innlent

Senda persónuupplýsingar um flugfarþega til bandarískra yfirvalda

Mynd/Valgarður Gíslason
Íslensk flugfélög þurfa að senda persónuupplýsingar úr farþegaskrám sínum til bandarískra yfirvalda á grundvelli samkomulags sem stjórnvöld hér á landi og í Bandaríkjunum hafa gert. Samkvæmt samkomulaginu njóta upplýsingarnar sömu verndar og upplýsingar um flugfarþega sem miðlað er til Bandaríkjanna frá ríkjum Evrópusambandsins. Greint er frá þessu á vef Persónuverndar.

Þar segir að flytja megi persónuupplýsingar til annarra landa að því gefnu að þar sé veitt fullnægjandi persónuupplýsingavernd. Þegar um ræðir ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins er sú sjaldnast raunin og teljast m.a. Bandaríkin ekki veita slíka vernd. Engu að síður getur flutningur upplýsinganna verið heimill að því gefnu að ákveðnum skilyrðum sé fullnægt og á það við í þessu tilfelli. Persónuvernd gerir því ekki athugasemdir við miðlun persónuupplýsinga þegar einstaklingar ferðast flugleiðis til Bandaríkjanna með íslenskum flugfélögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×