Innlent

Ekið á tíu ára dreng

Ekið var á tíu ára gamlan dreng á Hvaleyraholtinu í Hafnarfirði í dag. Drengurinn hlaut skurð á höfði og eymsl í vinstri fæti en slapp við beinbrot samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Sjúkrabíll kom á vettvang og ferjaði drenginn á spítala þar sem hann gekkst undir læknisskoðun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×