Innlent

Forsætisráðherra á leið til Færeyja

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jóhanna Sigurðardóttir er á leið til Færeyja.
Jóhanna Sigurðardóttir er á leið til Færeyja.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fer í dag í opinbera heimsókn til Færeyja.

Meðan á heimsókninni stendur mun forsætisráðherra eiga fund með Kaj Leo Johannessen, lögmanni Færeyja. Hann heimsótti Ísland í október síðastliðnum. Ráðherra mun einnig hitta færeysku ríkisstjórnina, auk þess að kynna sér menningu og sögu Færeyja. Heimsókn forsætisráðherra lýkur síðdegis á miðvikudag.

Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag er Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra líka á leið til Færeyja en hún ætlar að sitja fund samstarfsráðherra Norðurlanda í Þórshöfn á Færeyjum á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×