Hitametin falla á hlýjustu dögum ársins 6. september 2010 12:22 Sundlaugin á Akureyri. MYND/GVA
Hitamet hafa fallið á földa veðurstöðva, bæði norðanlands og vestan, í hitabylgunni sem leikið hefur um landið undanfarna daga, meðal annars á Akureyri, og laugardagurinn var hlýjasti dagur ársins til þessa yfir landið, sem þykir ótrúlegt, miðað við að komið er fram í septembermánuð.Veðurstofan spáir því að hitinn í dag geti farið allt upp í 20 stig norðanlands, en það yrði þá sjötta daginn í röð sem slíkt gerðist. Nú laust fyrir hádegi var hitinn reyndar "bara" kominn upp 19 gráður á nokkrum stöðum, eins og á sunnaverðu Snæfellsnesi og í Öræfasveit, og var að nálgast 19 gráðurnar á Siglufirði.Hlýindin á landinu þessa fyrstu sex daga septembermánaðar eiga sér ekkert fordæmi víða um land í sögu veðurmælinga, því hitamet hafa fallið í hrönnum. Trausti Jónsson veðurfræðingur nefnir til dæmis Akureyri og Húsavík og hitametið á Ísafirði var að minnsta kosti jafnað, en á laugardag mældist 24 stiga hiti víða norðanlands. Hæsta talan, 24,9 gráður, sást á mæli á Möðruvöllum í Hörgárdal.Laugardaginn var raunar hlýjasti dagur ársins yfir landið til þessa, að því er lesa má um á heimasíðu Sigurðar Þórs Guðjónssonar, áhugamanns um veðurfræði. Það þykir ótrúlegt að slíkt skuli gerast á þessu árstíma, en í huga landsmanna hefur septembermánuður gjarnan verið talinn haustmánuður.Sigurður Þór telur upp fjölda stöðva þar sem hitamet septembermánaðar féllu um helgina, eins og Blönduós, Hraun á Skaga, Torfur í Eyjafirði, Mánárbakka, Staðarhól og Skjaldþingsstaði í Vopnafirði. Þá féllu hitamet á Vestfjörðum, bæði í Æðey og á Hólum í Dýrafirði en þetta er í fyrsta sinn sem 20 stiga hiti mælist á Vestfjörðum í september á mannaðri veðurstöð.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira