Innlent

Viðar Már og Þorgeir metnir hæfastir í Hæstarétt

Viðar Már Matthíasson prófessor og Þorgeir Örlygsson, dómari við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg eru hæfastir umsækjenda til að gegna embætti hæstaréttardómara. Dómnefnd sem skipuð var til að meta hæfni umsækjenda hefur komist að þessari niðurstöðu. Fjórir skiluðu inn umsóknum, en auk þeirra Viðars Más og Þorgeirs sóttust héraðsdómararnir Sigríður Ingvarsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir, eftir embættinu.

Dómnefndina skipuðu þau Páll Hreinsson, Allan V. Magnússon, Brynjar Níelsson, Guðrún Agnarsdóttir og Stefán Már Stefánsson.

Að mati dómnefndar þóttu ekki efni til að greina á milli hæfni þeirra Viðars Más og Þorgeirs.

Álit dómnefndar má sjá í heild sinni hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×