Innlent

Gengislánamálið: Ráðherra útilokar ekki lagasetningu

Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra.
Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra.

Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir ekki útilokað að gripið verði til lagasetningar eftir að niðurstaða hæstaréttar í gengislánamálinu liggur fyrir. Hart var deilt á ríkisstjórnina á Alþingi í morgun fyrir aðgerðarleysi vegna skuldavanda heimilanna.

Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður framsóknarflokks, spurði efnahags- og viðskiptaráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun hvort ríkisstjórnin væri tilbúin með viðbrögð vegna væntanlegs dóms Hæstaréttar í gengislánamálinu.

Fram kom í svari ráðherra að innan ráðuneytisins færi nú fram greiningarvinna á hugsanlegum áhrifum dómsins. Mikilvægt væri að greiða úr óvissunni og tryggja öllum sama rétt. Ráðherra sagðist ennfremur nálgast málið með hagsmuni almennings í huga.

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður sjálfstæðisflokks, sakaði ríkisstjórnina um að beita blekkingum og vísvitandi fegra stöðu efnhagsmála og vísaði í því samhengi á tölur hagstofunnar um samdrátt landsframleiðslu.

Fram kom í máli ráðherra að tölurnar hefðu vissulega valdið vonbrigðum en engu að síður væri staðan mun betri en upphaflega var gert ráð fyrir. Fjárfestingar væru hins vegar ekki að skila sér vegna Icesave og leysa þurfi skuldavanda heimila og fyrirtækja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×