Innlent

Lúðvík aftur í bæjarstjórn Hafnarfjarðar

Valur Grettisson skrifar
Lúðvík Geirsson.
Lúðvík Geirsson.

Fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Lúðvík Geirsson, tekur sæti á ný í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Lúðvík féll úr bæjarstjórn í síðustu kosningum en hann gaf kost á sér í 6. sæti á lista Samfylkingarinnar en náði ekki kosningu.

Til stóð að ráða Lúðvík sem bæjarstjóra eftir kosningarnar en hugmyndin mæltist illa fyrir hjá bæjarbúum og minnihluta bæjarstjórnar. Til mynda komu tugir manna saman á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir kosningar síðasta vor og mótmæltu ráðningunni.

Frá henni var fallið að lokum og fyrsti maður á lista Samfylkingarinnar, Guðmundur Rúnar Árnason, varð því bæjarstjóri Hafnarfjarðar.

Bæjarfulltrúinn Margrét Gauja Magnúsdóttir óskaði eftir sex mánaða leyfi frá störfum í bæjarstjórn en hún eignaðist barn á dögunum.

Lúðvík er fyrsti varamaður og tekur því sæti í bæjarstjórn á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×