Innlent

Herjólfur siglir á morgun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gert er ráð fyrir að Herjólfur sigli frá Vestmannaeyjum til Landeyjarhafnar klukkan sex í fyrramálið og aftur til baka um einni og hálfri klukkustund seinna.

Þetta kemur fram í sérstakri áætlun sem hefur verið birt á vef Herjólfs. Ekkert var siglt á milli Vestmannaeyja og Landeyjarhafnar í dag vegna vonskuveðurs.

Landeyjarhöfn er orðin of grunn vegna framburðar á sandi og gosefnum, sem berst inn í höfnina. Á vef Herjólfs kemur fram að gert sé ráð fyrir að dýpkun hefjist fimmtudaginn 9. september






Fleiri fréttir

Sjá meira


×