Sameinað átak gegn svartri vinnu hafið 6. september 2010 05:30 Halldór Grönvold
Átaki gegn svartri atvinnustarfsemi og undirboðum á vinnumarkaði var hleypt af stokkunum um miðjan mánuðinn. Undirbúningur stendur yfir en á nýju ári verður nýjum reglum fylgt ákveðið eftir. „Fyrirtæki fá núna tækifæri til að kynna sér málið og ljúka undirbúningi. Þegar fram í sækir verður gengið eftir því með skipulögðum hætti að þessar skyldur séu uppfylltar. Smátt og smátt herðum við róðurinn og tugir starfsmanna munu koma að eftirliti," segir Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ. „Útfærsla eftirlits liggur ekki fyrir en erlendis þekkist að gerðar séu rassíur. Það kemur til greina hér." Alþýðusambandið og Samtök atvinnulífsins standa að samkomulaginu sem ætlað er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum. Samkomulagið nær í fyrstu til starfsmanna og fyrirtækja í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð sem og rekstri gististaða og veitingahúsa. Ástæðan er að í þessum greinum er mest um að farið sé á svig við lög og reglur. Til mikils er að vinna; tekjutap hins opinbera vegna skattsvika er metið á bilinu 40 til 60 milljarðar á ári. Halldór segir málið eiga sér langan aðdraganda. Það hafi svo verið framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun sem hafi komið málinu á dagskrá. „Við fengum fyrirtæki inn í landið sem vísvitandi ætlaði sér ekki að virða þær reglur sem hér gilda á vinnumarkaði. Á eftir fylgdu innlend og erlend fyrirtæki sem ætluðu að leika sama leikinn." Halldór segir að eftir erfiða fæðingu hafi vinnustaðaskírteini verið lendingin. Allir, atvinnulífið, verkalýðshreyfingin, skattayfirvöld og þá ríkið, hafi séð hagsmunum sínum betur varið með samræmdu kerfi. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri fagnar samkomulaginu og segir það stórt skref fram á við. „Þetta er til að sporna við því að menn séu með fólk á duldum launum. Þeir sem það gera sækja sér oft bætur á fölskum forsendum. Þetta kerfi getur því tekið á margvíslegum vanda." Skúli segir ekkert í hendi um að svört atvinnustarfsemi hafi aukist með hruninu. „Það er hins vegar þráfaldur orðrómur um slíkt."svavar@frettabladid.is
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Brotlenti í djúpu gili Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fleiri fréttir Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Sjá meira