Valtýr segir kröfu um afsögn sína ósannfærandi 18. október 2010 09:45
Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari segir mikið áhyggjuefni hvernig komið er fyrir umræðu um kynferðisbrot. „Ég tel það háalvarlegt mál að því sé haldið fram á opinberum vettvangi að embættismenn vinni markvisst gegn framgangi kynferðisbrota og að brotaþolum kynferðisbrota „sé ekki trúað" í réttarkerfinu sem sé ein „svikamylla". Þá eru það ekki sannfærandi viðbrögð að krefjast afsagnar þeirra sem gera tilraun til þess að ræða málefnalega um málaflokkinn." Þetta kemur fram í svari Valtýs við bréfi dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins vegna umræðu um kynferðismál.Kröfðust afsagnar Valtýs Ögmundur Jónasson kallaði Valtý á fund sinn eftir háværa umræða um vinnulag í kynferðisbrotamálum í kjölfar þess að Valtýr tjáði sig um kynferðisbrotamál í viðtali við DV. Orð Valtýs í viðtalinu féllu í grýttan jarðveg og bárust ráðuneytinu fjölda athugasemda vegna ummæla hans. Sumir kröfðust þess hreinlega að Valtýr myndi segja af sér. Valtýr er ósáttur við þá gagnrýni sem þá kom fram í hans garð frá ýmsum þeim sem koma að starfi með fórnarlömbum kynferðisofbeldis.Ómakleg ummæli „Nýlega var Björgin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu látinn skipta um starfsvettvang innan lögreglunnar eftir að hafa tjáð skoðanir sínar í viðtali um þessi mál og var þá sérstaklega vísað til tiltekinna ummæla hans. Í blaðaviðtali af þessu tilefni vísaði Guðrún Jónsdóttir til ummæla Björgvins og sagði; „ Starfsfólk Stígamóta hefur haft áhyggjur af þeim litla fjölda dóma sem fallið hafa í nauðgunarmálum á síðustu áratugum. Ég vona að skýringarnar liggi ekki í svona viðhorfum." Þessi ummæli tel ég að hafi verið ómakleg enda Guðrúnu fullkunnugt um hið gagnstæða. Þá eru þau til þess fallin að kasta rýrð á störf lögreglu. Þetta sýnir hins vegar að mínu mati í hversu miklar ógöngur umræða um málaflokkinn er komin," segir í svari Valtýs.Sakfellingum fjölgar Valtýr sendir Ögmundi einnig töflu þar sem fram kemur að fjöldi niðurfelldra mála hjá embætti ríkissaksóknara árið 2006 og 2007 hafi verið um 57% en en voru komin niður í rúm 44% árin 2008 og 2009. Þrátt fyrir það fækkar sýknudómum í héraði sömuleiðis á sama tímabili. Valtýr bendir á að þetta sýni að fleiri mál rata til dómstóla og að sakfellingum fjölgar.Traust mikilvægt „Það er mikilvægt að almenningur beri traust til ákæruvaldsins í landinu. Það verður m. a. gert með því að birta upplýsingar og gefa skýringar á vinnubrögðum ákæruvaldsins. Opin stjórnsýsla, þar sem allar réttar upplýsingar liggja fyrir, stuðlar að bættu réttarkerfi og hvetur jafnframt viðkomandi til að gera betur. Miðlun allra slíkra upplýsinga getur ekki, að mati ríkissaksóknara, verið til þess fallin að rýra traust þolenda á réttarvörslukerfinu heldur þvert á móti svo að svarað sé beint spurningu ráðuneytisins að þessu leyti. Skiptir þá ekki öllu máli hvort sú umræða fari fram í fjölmiðlum eða annars staðar," segir Valtýr. Valtýr vill þverfaglega nefnd Ríkissaksóknari telur jafnframt nauðsynlegt að dómsmála- og mannréttindaráðherra skipi þverfaglega nefnd þeirra sem að þessum málum koma, það er lögreglu, neyðarmóttöku, ríkissaksóknara, lögmanna og fulltrúa Stígamóta, undir formennsku prófessors til að fara yfir tölfræði, vinnuferla og vinnubrögð auk þess að athuga hvort lagabreytinga sé þörf á þessu sviði. Þá þurfi að athuga hvernig efla megi með markvissum hætti forvarnarstarf í málaflokknum.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira