Gagnrýna flutning á málefnum fatlaðra 6. september 2010 12:02
Ríkisendurskoðun og Öryrkjabandalag Íslands eru sammála um að framkvæmd og skipulag á þjónustu við fatlaða sé í mörgu ábótavant. Ekki liggur fyrir hvort hagkvæmara er að ríki eða sveitarfélög veiti þjónustuna. Formaður Öryrkjabandalagsins segir að félagsmálaráðuneytið hafi ekki unnið vinnuna sína. Flutningur á málaflokki fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga á að fara fram um áramótin. Um er að ræða viðamestu endurskipulagningu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga frá flutningi grunnskólanna árið 1996. Tekjustofnar sem nema rúmum tíu milljörðum flytjast til sveitarfélaganna á næsta ári samhliða yfirfærslu málaflokksins. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar til Alþingis um málefni fatlaðra, sem kom út í ágúst, kemur fram að það skorti heildarstefnu í málaflokknum, ekki sé gert ráð fyrir fjárveitingum í samræmi við mat á þjónustuþörf og meginþættir í starfsemi þjónustuaðila fylgi ekki samræmdum verklagsreglum. Skortur á samanburðarhæfum upplýsingum um þjónustuna valdi einnig því að ekki er unnt að meta hvort hagkvæmara er að ríki eða sveitarfélög veiti hana. Í nýrri ályktun framkvæmdastjórnar Öryrkjabandalagsins er tekið undir gagnrýni Ríkisendurskoðunar. Guðmundur Magnússon, formaður bandalagsins, segir mikilvægt að allt lagaumhverfi sé tryggt svo yfirfærslan geti farið fram með sóma. „Menn telja að þetta hljóti að vera betra að hafa þetta sem næst neytandanum, en allt er þetta tvíbent," segir Guðmundur og segir að starfsfólk ráðuneytisins hafi ekki staðið sig í stykkinu þegar verið var að meta hagkvæmnina af flutningi málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira