Innlent

Þétt setið í dómssalnum - málflutningi lokið

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar
Hæstiréttur Íslands. Mynd úr safni.
Hæstiréttur Íslands. Mynd úr safni.

Málflutningur hófst í Hæstarétti í morgun í máli Lýsingar um vexti á gengistryggðu bílaláni. Þar með gæti óðum styst í að skorið verði úr óvissunni sem hvílt hefur á þúsundum landsmanna um vaxtakjör slíkra lána.

Þetta tiltekna mál sem var flutt fyrir Hæstarétti í morgun snýst um gengistryggt lán sem hvíldi á Grand Cherokee jeppa sem maður tók á kaupleigu árið 2007 hjá Lýsingu. Maðurinn borgaði af bílnum fram á vor 2009 en skilaði bílnum þremur mánuðum síðar. Lýsing stefndi honum síðan vegna vanskila.

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi að lánið skyldi bera óverðtryggða vexti Seðlabanka Íslands í stað hinna lágu erlendu samningsvaxta. Samkvæmt héraðsdómi skuldar maðurinn því Lýsingu tæpar 800 þúsund krónur - hefðu erlendu samningsvextirnir verið látnir gilda hefði skuldin hrapað í 120 þúsund krónur.

Þéttsetið var í Hæstarétti í morgun þegar málflutningur hófst og þurfti að vísa fólki frá en talið er að dómur Hæstaréttar hafi fordæmisgildi við uppgjör annarra gengistryggðra lána. Um 40.000 einstaklingar eru með gengistryggð bílalán, og eru þá ótalin gengistryggð húsnæðislán.

Það kemur því í ljós innan tíðar hvort Hæstiréttur taki undir með Héraðsdómar, fyrstu dómar Hæstaréttar eftir sumarfrí verða kveðnir upp eftir tíu daga. Óvíst er að myntkörfudómurinn náist á þeim tíma, en ólíklegt er að meira en fjórar vikur verði í að slegið verði á óvissuna um vaxtakjör gengistryggðra lána.

Málflutningi er nú lokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×