Bið múslíma eftir mosku brátt á enda 6. september 2010 06:00 Salmann við bænastund í moskunni í Ármúla. Skipulagsyfirvöld í Reykjavík gefa von um að múslímar á Íslandi fái brátt úthlutað langþráðri lóð undir nýja mosku. Fréttablaðið/Vilhelm
Tíu ára bið múslima á Íslandi eftir lóð undir mosku í Reykjavík gæti senn verið á enda, en borgaryfirvöld eru vongóð um að geta fundið lóð á næstu vikum. Félag múslima á Íslandi sendi í upphafi sumars fyrirspurn til borgaryfirvalda þar sem óskað var eftir viðræðum um málið. Þar var bent á svæði vestan Veðurstofu Íslands, á lóð Íslandsbanka við Kirkjusand og á lóð Sjómannaskólans við Háteigsveg. Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri Reykjavíkur, segir í samtali við Fréttablaðið að tvær lóðanna séu ekki á hendi borgarinnar og það flæki málin. „Við erum að skoða fleiri staði, sem henta varðandi aðkomu og samhengi við aðra starfsemi og þjónustu, þannig að þetta er komið af stað.“ Ólöf gat aðspurð ekki svarað því nákvæmlega hvaða svæði væri um að ræða. „Það eru nokkur svæði sem okkur þykja mjög spennandi. Við höfum verið að skoða svæði frá Elliðavoginum og inn í bæinn.“ Hún segir að þótt málið hafi verið svo lengi í kerfinu hafi ekki skort á pólitískan vilja til að finna lóð undir mosku. „Við fórum í það á sínum tíma að finna lóðir fyrir öll trúfélög og erum búin að finna lóð fyrir ásatrúarmenn í Öskjuhlíð og fyrir rétttrúnaðarkirkjuna við Nýlendugötu, en það er ekki mikið um lausar lóðir á vegum borgarinnar miðsvæðis. Svo er oft búið að eyrnamerkja lóðirnar einhverjum öðrum eða gefa vilyrði fyrir annars konar starfsemi.“ Þetta hafi oft orðið til þess að hefja þurfti ferlið að nýju, en Ólöf er viss um að það takist nú. „Ég reikna með að þetta gerist núna á næstu vikum.“ Salmann Tamimi, formaður Félags múslima á Íslandi, fagnar þessum fregnum, og að um sé að ræða mannréttindamál. Samkvæmt tölum frá Hagstofunni eru um 600 múslímar á Íslandi. Hann sagði að það væri lykilatriði að vera miðsvæðis í borginni til að auðvelda aðgengi. „Þetta verður fyrir alla, ekki bara múslíma. Þetta verður fræðisetur þar sem allir geta komið og skoðað, lesið og lært og eytt fordómum sem til eru í samfélaginu.“ Ekki liggja enn fyrir teikningar, en Salmann segir að félagið sé að skoða málin í samstarfi við arkitekt. „Við viljum hafa þetta alíslenskt allt saman. Það er okkar stefna. Þetta er fyrir Íslendinga.“ thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Fleiri fréttir Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Sjá meira