Innlent

Hamraborgin iðaði af lífi

Hátíð í bæ Sannkölluð markaðsstemning á fyrstu Hamraborgarhátíðinni í Kópavogi. mynd/hermann H. Hermannsson
Hátíð í bæ Sannkölluð markaðsstemning á fyrstu Hamraborgarhátíðinni í Kópavogi. mynd/hermann H. Hermannsson
Hamraborgarhátíð í Kópavogi var haldin í fyrsta sinn á laugardaginn. Hátíðin var haldin á vegum Kópavogsbæjar í samstarfi við verslanir og fyrirtæki í Hamraborginni.

Verslunareigendur buðu gestum og gangandi upp á veitingar og tónlistaratriði, töframenn brugðu á leik og þekktir Kópavogsbúar fræddu gestu um sögu Hamraborgarinnar. Götunni var breytt í göngugötu og markaðsstjöld sett upp. Þá kynntu íþróttafélög bæjarins vetrarstarf sitt og menningarstofnanir bæjarins voru opnar. - rat




Fleiri fréttir

Sjá meira


×