Innlent

Trefillinn jafnlangur jarðgöngunum

Fríða Björk Gylfadóttir með það sem búið er að prjóna af treflinum sem stefnt er á að verði jafnlangur og jarðgöngin milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar.  mynd/úr einkasafni
Fríða Björk Gylfadóttir með það sem búið er að prjóna af treflinum sem stefnt er á að verði jafnlangur og jarðgöngin milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. mynd/úr einkasafni
Á Siglufirði er í gangi óvenjulegt prjónaverkefni en listakonan Fríða Björk Gylfadóttir stendur fyrir því að prjónaður sé 17 kílómetra langur trefill, sem ná á frá miðbæ Siglufjarðar yfir í miðbæ Ólafsfjarðar, og er þá jafnlangur jarðgöngum þeim sem þar munu koma á milli.

„Ég fékk þessa hugmynd í tengslum við vígslu ganganna nú í haust en trefillinn á að vera táknræn tenging á bæjarfélögunum, þar sem þau eru tengd saman á einkar hlýlegan hátt,“ segir Fríða Björk en um áttatíu manns, frá tuttugu stöðum, hafa hjálpað til við prjónaskapinn undanfarið.

Lagt er upp með að göngin milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar verði vígð í september og Fríða Björk segist vera orðin bjartsýn á að hægt verði að ljúka við trefilinn fyrir þann tíma. „Nú á þremur vikum erum við komin með 178,59 metra og það er prjónað úti um allt. Við höfum komið garni og prjónum fyrir á biðstofum lækna, hárgreiðslustofum, kaffistofum fyrirtækja og fleiri stöðum hér í bænum og allir eru hvattir til að prjóna. Svo fáum við bútana til okkar og þeir eru saumaðir saman.“

Hvernig treflinum sjálfum verður svo komið fyrir er enn í þróun en Fríða Björk segir að sú hugmynd hafi meðal annars komið upp að leggja trefilinn hreinlega eftir veginum, en það eigi allt eftir að koma betur í ljós. Hægt er að fylgjast með framgangi verkefnisins á vefsíðunni www.frida.is.- jma



Fleiri fréttir

Sjá meira


×