Veikleiki listans er skortur á endurnýjun 25. janúar 2010 01:15 Hanna Birna Kristjánsdóttir
Niðurstaða prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík skilar lista sem lítur ágætlega út, með óumdeildan leiðtoga. Veikleiki listans er helst skortur á endurnýjun, segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri hlaut afgerandi kosningu í fyrsta sætið, sem sýnir öðru fremur að hún er fremur óumdeildur leiðtogi flokksins í borginni, segir Gunnar Helgi. Í öðru sæti hafnaði Júlíus Vífill Ingvarsson, einn þeirra fimm sem sóttist eftir því sæti á listanum. Gunnar Helgi segir niðurstöðuna í slagnum um annað sætið ekki koma sérstaklega á óvart. Júlíus Vífill komi vel út, og fyrirfram hafi verið vitað að staða Gísla Marteins Baldurssonar, sem hafnaði í fimmta sætinu, væri erfið. Niðurstaðan er ákveðinn varnarsigur fyrir Gísla Martein, þrátt fyrir að rætt hafi verið um að hann hafi verið framtíðar forystuefni flokksins í borginni fyrir nokkrum árum. Það hljóta að vera vonbrigði fyrir Geir Sveinsson að hafna í sjötta sætinu, segir Gunnar Helgi, en hann var einn þeirra sem sóttust eftir öðru sætinu. Þetta sýni að það sé ekki sjálfrötuð leið í forystusæti í stjórnmálum Það hljóta að vera vonbrigði fyrir Jórunni Frímannsdóttur að hafna í áttunda sætinu á listanum eftir að hafa sóst eftir því þriðja, segir Gunnar Helgi. Ýmislegt geti hafa haft áhrif á hennar gengi, til dæmis umdeilt sjónvarpsviðtal í Ríkissjónvarpinu nýverið. Þátttaka í prófkjörinu var fremur dræm, tæplega 35 prósent. Gunnar Helgi segir það líklega tengjast því að ekki hafi verið slagur um fyrsta sætið, en Hanna Birna var sú eina sem bauð sig fram til forystu á listanum. - bj
Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Erlent Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Sjá meira