Þjóðin kjósi um breytingar á kvótakerfinu 25. janúar 2010 10:57 Mynd/Anton Brink
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að til greina komi að leggja breytingar á kvótakerfinu í dóm þjóðarinnar í sérstakri þjóðaratkvæðagreiðslu. Ekki sé gott að bullandi ágreiningur sé meðal þjóðarinnar um sjávarútvegskerfið. „Það gýs upp í öllum alþingiskosningum mikil og megn óánægja með ákveðna þætti þessa kerfis. Markmiðið er að reyna að koma mönnum að borði í viðræður um að skoða þetta og leita leiða til að ná betri sátt um fyrirkomulag þessa mála," sagði Steingrímur í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Aðspurður um hvort hann telji að þjóðin eigi að kjósa um breytingar á kvótakerfinu sagði Steingrímur: „Það getur vel komið til þess ef að einhverjir skýrir valkostir milli leiða væru í boði og hægt væri að kjósa um. Þetta er stórt og mikið mál. Þetta er grundvallarmál. Ég held að það sé miklu auðveldara að ná sátt um þetta en menn telja ef menn fást til að setjast í alvöru niður." Þá kom fram í máli Steingríms að enn sé uppi á borðum hugmyndir um að festa þriðjung kvótans í byggðarlögunum. Annar þriðjungur væri á markaði. „Slíkt kerfi held ég að myndi leita jafnvægis á góðum forsendum," sagði Steingrímur. Hægt er að hlusta á viðtalið hér.
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB Innlent Fleiri fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Sjá meira