Framlag ríkis til RÚV var 575 milljónum umfram innheimtar tekjur 25. janúar 2010 15:59
Framlag ríkissjóðs til RÚV árið 2009 var 575 milljónum króna umfram innheimtar tekjur af útvarpsgjaldi samkvæmt sameiginlegri fréttatilkynningu frá mennta- og menningamálaráðuneyti og fjármálaráðuneyti. Þá segir ennfremur að þrátt fyrir niðurskurð þá sé framlagið í ár hærra en það var árið 2008. Átján starfsmönnum RÚV var sagt upp á dögunum vegna niðurskurðar. Tilkynningu ráðuneytanna má lesa hér: „Að gefnu tilefni vilja fjármálaráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytið koma eftirfarandi staðreyndum á framfæri. Með lögum nr. 6/2007, um Ríkisútvarpið ohf. (RÚV), var kveðið á um upptöku sérstaks útvarpsgjalds frá 1. janúar 2009 sem koma skyldi í stað afnotagjalda. Skv. lögunum var gjaldið markað, þ.e. allar innheimtar tekjur af því áttu að renna til reksturs RÚV. Við efnahagshrunið í október 2008 skapaðist mikil óvissa um tekjustofna ríkissjóðs, þ.á m. útvarpsgjaldið. Til þess að bregðast við þeirri óvissu lagði þáverandi ríkisstjórn fram frumvarp um breytingu á lögum nr. 6/2007. Með því var m.a. lagt til að gjaldið yrði hækkað um 18% auk þess sem bein mörkun þess til reksturs RÚV var afnumin. Þessar breytingar voru samþykktar á Alþingi í desember 2008. Í fjárlögum ársins 2009 var gert ráð fyrir að framlag til RÚV úr ríkissjóði yrði 2.945 m.kr. Vorið 2009 ákvað núverandi ríkisstjórn að leggja það til að framlag til RÚV yrði aukið um 630 m.kr. í fjáraukalögum (21% aukning frá fjárlögum). Heildarframlag ríkissjóðs til RÚV árið 2009 nam því 3.575 m.kr. Í fjárlögum 2009 var gert ráð fyrir að innheimtar tekjur af útvarpsgjaldi yrðu 3.575 m.kr. en við endanlega gerð fjáraukalaga kom í ljós að einungis 3.000 m.kr. myndu skila sér. Framlag ríkissjóðs til RÚV var því 575 m.kr. umfram áætlaðar innheimtar tekjur af útvarpsgjaldi árið 2009. Við gerð fjárlaga ársins 2010 var sett markmið um 10% aðhald í rekstri RÚV eins og margra annarra rekstrarstofnana. Framlag ríkissjóðs til RÚV mun því lækka úr 3.575 m.kr. í 3.218 m.kr. á þessu ári sem er þó hærra en það var árið 2008. Í fjárlögum 2010 er áætlað að innheimtar tekjur af útvarpsgjaldi verði 2.800 m.kr. og verði því 418 m.kr. lægra en framlag ríkissjóðs til RÚV verður skv. fjárlögum. Við gerð áætlunar um tekjur af útvarpsgjaldi fyrir fjárlög ársins 2010 var tekið mið af útkomu ársins 2009 sem sýndi að tekjustofninn hafði verið ofmetinn í fjárlögum ársins 2009."
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Sjá meira