Vilja viðræður um fríverslunarsamning við BNA Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. október 2010 10:32 Þingsályktunartillaga um fríverslunarsamning við Bandaríkin hefur verið lögð fram á Alþingi. Mynd/ Anton.
Utanríkisráðherra mun óska eftir viðræðum við ríkisstjórn Bandaríkja Norður-Ameríku um gerð tvíhliða fríverslunarsamnings milli Íslands og Bandaríkjanna, verði þingsályktunartillaga fjögurra þingmanna þessa efnis samþykkt. Í greinargerð með tillögunni, sem dreift var á Alþingi í gær, kemur fram að það sé lykilatriði í endurreisn íslensk efnahagslífs að tryggja íslenskum fyrirtækjum bestu mögulegu viðskiptakjör. Tollfrjáls aðgangur að einum stærsta markaði heims, Bandaríkjamarkaði, sé mjög mikilvægur í þessu sambandi. Þingmennirnir segja að með tilkomu fríverslunarsamnings við Bandaríkin myndu bandarískar vörur lækka í verði til hagsbóta fyrir íslenska neytendur og fyrirtæki. Sóknarhagsmunir Íslands liggi í því að tryggja greiðan aðgang að Bandaríkjamarkaði fyrir útflutningsvörur, sérstaklega fiskafurðir og iðnaðarvöru. Þingmennirnir telja að hagur Bandaríkjamanna yrði einkum sá að þeir gætu nýtt Ísland sem umskipunarhöfn fyrir flutninga á Evrópumarkað. Lega landsins gæti þannig orðið til þess að Ísland yrði milliliður fyrir viðskipti milli Bandaríkjanna og meginlands Evrópu. Þá gæti einnig orðið hagkvæmt að flytja hálfunnar vörur frá Bandaríkjunum til Íslands, fullvinna þær hér á landi og selja í öðrum Evrópulöndum. Það eru þingmenn úr Framsóknarflokki, Sjálfstæðisflokki og Vinstri hreyfingunni - grænu framboði sem leggja tillöguna fram. Það eru þau Birgir Þórarinsson, Ragnheiður Elín Árnadóttir, Jón Gunnarsson og Ásmundur Einar Daðason.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Sjá meira