Innlent

Búið að endurreikna samninga 25 - 30 þúsund einstaklinga

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Árni Páll Árnason hefur boðað frumvarp í samræmi við gengisdóminn. Mynd/ Anton.
Árni Páll Árnason hefur boðað frumvarp í samræmi við gengisdóminn. Mynd/ Anton.
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið áætlar að fjármálafyrirtæki hafi nú þegar endurreiknað gengisbundna lánasamninga 25 til 30 þúsund einstaklinga. Þeir lántakendur sem um ræðir hafa fengið tilkynningu um lækkun eftirstöðva lánsins í heimabanka nú þegar eða munu fá tilkynningu á næstu dögum og vikum, samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu. Endurútreikningar lána eru liður í viðbrögðum fjármálafyrirtækja vegna dóms Hæstaréttar frá 16. september sl. og fyrirhugaðrar löggjafar stjórnvalda þess efnis að gengisbundin lán til húsnæðis- og bílakaupa séu ólögleg.

Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur þegar boðað frumvarp sem tryggir að dómur Hæstaréttar nái til allra gengisbundinna lána til húsnæðis- og bílakaupa. Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu segir að reglur um uppgjör tryggi þeim sem hafa selt frá sér bíl eða íbúðarhúsnæði sanngjarna endurgreiðslu og miði stór hluti vinnunnar að því að greiða úr slíkum málum. Sum fjármálafyrirtæki bjóði endurgreiðslu eða skuldajöfnun við höfuðstól. Nokkur fyrirtæki hafi ekki lausafé til að endurgreiða öllum lántakendum. Því sé í frumvarpinu heimild til skuldajöfnunar, sem tryggi að ekki komi til þrots lánastofnana og þar með að viðskiptavinir viðkomandi fyrirtækja tapi öllum kröfum sínum á hendur þeim.

„Frumvarpið miðar að því að skila öllum lántakendum gengisbundinna lána lækkun eftirstöðva, óháð samningsgerð. Samkvæmt frumvarpinu munu eftirstöðvar lánanna lækka verulega við breytinguna, t.d. um 25-47% fyrir 25 ára lán. Frumvarpið er í vinnslu í ráðuneytinu og verður að óbreyttu lagt fram í ríkisstjórn á föstudag," segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×