Innlent

Íslandsvika BBC - tökulið á Þingeyri

Víkingar. Myndin er úr safni.
Víkingar. Myndin er úr safni.

Tökulið á vegum BBC var stadd á Þingeyri á mánudag við tökur á heimildarmynd um Laxdælasögu samkvæmt frétt á vef Bæjarins besta, bb.is.

Þar var rætt við Döllu Jóhannsdóttur hjá Sagafilm, sem fylgdi tökuliðinu á ferð þess um landið.

„Þingeyri er vissulega nokkuð fyrir utan sögusvið Laxdælu en þar er eina sjófæra víkingaskipið á landinu og við komum til að mynda um borð í því. Þetta var frábær dagur, veðrið eins og best verður á kosið og Bretarnir mjög hrifnir af umhverfinu," sagði Dalla í viðtali við bb.is og bætti við að heimamenn hefðu tekið vel á móti gestunum.

„Þarna kom saman góður hópur til þess að róa skipinu, við fengum tvo myndarpilta, Anton Lína og Dag Steinarsson, til þess að leika þá Bolla og Kjartan, auk þess sem Daníel Kristjánsson las kafla úr Laxdælu á hafnarbakkanum."

Fyrirhugað er að sýna heimildarmyndina á BBC4 í apríl á næsta ári.

„Sjónvarpsstöðin stendur þá fyrir Íslandsviku þar sem sýndar verða bæði íslenskar kvikmyndir og heimildarmyndir," sagði Dalla við bb.is en tökuliðið nú er statt við tökur í Dölunum á hinu upprunalega sögusviði Laxdælu.

Hér má nálgast fréttina á vef bb.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×