Hæstaréttarlögmaður: Almenn niðurfærsla lýsir taugaveiklun 16. október 2010 10:46 Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður og formaður Lögmannafélags Íslands. Mynd/GVA
Formaður Lögmannafélagsins segir eignarréttinn varinn af stjórnskránni og Alþingi ekki geta með einu pennastriki svipt kröfueiganda eignum sínum. Hann segir að flokka eigi hugmyndir um niðurfærslu sem taugaveiklun og ráðaleysi. Undanfarna daga hefur stíft verið fundað um útreikninga og hugmyndir varðandi lausn á vanda skuldugara heimila. Ríkisstjórnin skoðar nú blandaða leið til að mæta vanda skuldugustu heimilanna en almenn niðurfærsla lána virðist út af borðinu. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að svo mikil andstaða væri við tillögur um flata niðurfellingu að þær væru væntanlega út af borðinu. Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður og formaður Lögmannafélags Íslands, fjallar um málið í pistli á Pressunni í dag. Hann segir að svo virðist sem að gleymst hafi að lesa stjórnarskrána. Fjárkrafa sé eign og eignarétturinn sé varinn í stjórnarskránni. „Löggjafinn getur því ekki með einu pennastriki niður við Austurvöll svipt kröfueiganda eignum sínum. Ef löggjafinn vill greiða skuldir fólks að hluta eða öllu leyti úr ríkissjóði er hins vegar ekkert við því að segja. Það verða því engar niðurfærslur á skuldum nema kröfueigandi samþykki," segir Brynjar og bætir við að kröfueigandi muni aldrei samþykkja niðurfærslu nema að hann sjái sér hag í því. Kröfueigandi gæti séð hag í niðurfærslu á skuld í einstökum tilvikum en tæplega í almennri niðurfærslu skulda. „Þungaviktarmaður í heimi hagfræðinnar kallaði þetta niðurfærslutal lýðskrum á Rás 2 á dögunum. Ég er ekki viss um það sé rétt. Nær væri að flokka þetta tal undir taugaveiklun og ráðaleysi," segir Brynjar í pistlinum sem hægt er að lesa hér.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira