Reikna út kostnað við aðgerðir til handa skuldugum heimilum 16. október 2010 12:11 Jóhanna Sigurðardóttir.
Sérfræðingar á vegum stjórnvalda munu um helgina reikna út hvað aðgerðir til handa skuldugum heimilum muni kosta ríkissjóð og aðra. Forsætisráðherra vonar að fyrstu skrefin liggi fyrir á næstu dögum en segir að nokkar vikur geti liðið áður en endanleg niðurstaða náist. Fimm ráðherrar undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra funduðu sín á milli um aðgerðir vegna skuldavanda heimillanna í gær og áttu síðan fund með fulltrúum stjórnarandstöðunnar. Undanfarnar tvær vikur hafa stjórnvöld átt fundi með Hagsmunasamtökum heimilanna, fulltrúm banka og lífeyrissjóða og fleirum. Forsætisráðherra segir mikilvægt að allir aðilar komi að málinu til að finna hvar geti myndast sem víðtækust samstaða. „Ég held að þessi vika sýni okkur það er töluvert mikil andstaða, meiri en ég átti von, við það að fara almenna niðurfærsluleið," segir Jóhanna. Hins vegar liggi nú á borði stjórnvalda átta eða níu tillögur um ýmsar niðurfærslur fyrir ákveðna hópa. „Sem beinist að því að skoða sérstaklega eignir sem eru yfirveðsettar sem eru þá hjá hópum sem hafa verið að kaupa fyrir 3-4 árum síðan og er kannski aldurhópurinn 25-40 ára sem menn vilja töluvert horfa á," segir Jóhanna.Ekki má þrengja að velferðarkerfinu Vilji sé til þess að fara í viðbótaraðgerðir fyrir skuldugustu heimilin, sem allir aðilar tækju þátt í að framkvæma. Síðan sé mikilvægt að ryðja úr vegi hindrunum varðandi þau úrræði sem þegar séu fyrir hendi. Viðbótaraðgerðir megi ekki þrengja enn frekar að velferðarkerfinu. Jóhanna vonist til að stjórn- og stjórnarandstaða geti staðið saman að frumvörpum sem kunna þurfi að leggja fram vegna aðgerðanna. „Öll mál sem snerta skuldavanda heimilanna og við erum að fjalla um í ríkisstjórninni fara nú ekki bara til stjórnarflokkanna heldur einnig til stjórnarandstöðuflokkanna þannig að samvinnan er mjög mikil í þessu máli."„Það er tækifæri núna" Framsóknarmenn lögðu fram sínar hugmyndir um aðgerðir á fundi með ráðherrunum í gær en þar er lögð áhersla á almenna niðurfærslu skulda. Gunnar Bragi Sveinsson þingflokksformaður Framsóknarflokksins sagði eftir fundinn, að það væri sorglegt að bankar, lífeyrissjóðir og aðrir sem hefðu hagnast á verðbólgunni, vildu ekki koma til móts við skuldara með almennri niðurfærslu skulda. „Það er hægt að semja og tala um alla hluti. Það er tækifæri núna og það er í raun mjög sorglegt ef ekki verður hægt að bæta aðeins ástandið frá því sem áður, en því miður sé ég ekki að það verði," segir Gunnar Bragi.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira