Innlent

Hyggst verja friðarverðlaununum til uppbyggingar skóla í Afríku

Heimir Már Pétursson skrifar
Baráttukonan og rithöfundurinn Alice Walker ætlar að verja Lennon/Ono friðarverðlaununum til uppbyggingar skóla fyrir stúlkur í Kenya. Hún segir kynþáttamismunun enn eiga sér stað í Bandaríkjunum, enda séu fleiri svartir Bandaríkjamenn í fangelsum en í háskólum landsins.

Alice Walker er meðal þekktustu og virtustu mannréttindafrömuða og rithöfunda Bandaríkjanna. Hún er af fátækum foreldrum í Georgíu fylki komin, en móðir hennar var staðráðin í að koma henni til mennta. Ung að árum hitti hún Martin Luther King og nítján ára gömul tók hún þátt í milljón manna göngu svartra til Washington árið 1963. Síðast var hún handtekin þegar hún á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 2003, rauf ásamt öðrum varnarlínu lögreglu um Hvíta húsið til að mótmæla fyrirhuguðu stríði Bandaríkjamanna í Írak.

Segir Obama standa frammi fyrir öflugum andstæðingum

Aðspurð hvort kynþáttafordómar séu enn við lýði í Bandaríkjunum segir Walker: „Já, kynþáttafordómar eru við lýði. Það breytir ekki þeirri staðreynd, þótt við höfum forseta af afrísk-amerískum uppruna, að það eru 2 milljónir manna af afrískum-amerískum uppruna í fangelsum. Mjög stór hluti íbúa okkar er í fangelsum, reyndar fleiri í fangelsum en í háskólum. Þetta er því mjög skýrt dæmi um kynþáttafordómana kerfisins."

Walker er einlægur stuðningsmaður Baracks Obama forseta en segir hann standa frammi fyrir öflugum andstæðingum. Walker var ein fjögurra sem fékk Lennon/Ono friðarverðlaunin um síðustu helgi. Þegar hún tók við verðlaununum sagðist hún hafa verið vinur Johns og Yoko í áratugi án þess að hafa nokkru sinni hitt þau.

„Það var John sem varð til þess að ég komst yfir inngróna andstöðu mína við þann möguleika að hvítur maður fengi varanlegan aðgang að hjarta sem ekki væri hvítt. Þegar hann var myrtur varð ég slíkum harmi slegin að ég gat vart staðið upprétt."

Peningarnir fara til munaðarlausra barna

Walker er frægust fyrir bók sína Purpuraliturinn. En hún fæst enn við skriftir og berst gegn kynþáttamismunun og fyrir mannréttindum og er ekki í vafa um hvað hún ætlar að gera við sex milljón króna verðlaunafé sitt.

„Ég fann strax að það mikilvægasta við þessi verðlaun myndi vera það að ég gæfi þau frá mér um leið. Það fannst mér frábært," segir Walker.

Sjálf þurfi hún enga viðurkenningu, lífið sjálft sé hennar verðlaun. Peningarnir fari til munaðarlausra barna í Kenya sem misst hafi foreldra sína úr alnæmi.

„Það má nýta þessa peninga til að byggja vatnskerfi svo börnin þurfi ekki að ná í vatnið úr ánni. Það má byggja svefnskála fyrir stúlkur og kannski fyrir stráka líka. Þetta gleður mig því mikið," segir Walker.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×