Hagsmunum landsbyggðarinnar ekki fórnað fyrir hátæknisjúkrahús 16. október 2010 12:59 Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, Mynd/Pjetur
Fullyrðingar um að verið sé að fórna hagsmunum landsbyggðarinnar fyrir hátæknisjúkrahús eru ómaklegar og beinlínis rangar segir forstjóri Landspítalans. Eyþór Arnalds, formaður bæjarráðs Árborgar, fjallaði nýlega um niðurskurð á sjúkrastofnunum á Suðurlandi og annar staðar á landsbyggðinni. Í grein í Dagskránni á Suðurlandi segir hann að eina haldbæra skýringin á niðurskurðinum sé sú að menn vilji færa langflestar aðgerðir landsmanna til Reykjavíkur. Heldur Eyþór því fram að þetta sé gert til að réttlæta það sem hann kallar svokallað „hátæknisjúkrahús." Spyr Eyþór hvort ekki væri nær að fresta eða hætta við þessa nýbyggingu og nýta betur þá innviði sem við höfum nú þegar fjárfest í. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, bendir á hátæknisjúkrahúsið verði fjármagnað með fé frá lífeysissjóðum. Ekki sé gert ráð fyrir að fé af fjárlögum renni til sjúkrahússins. „Það voru sett lög Alþingi í vor um stofnun opinbers hlutafélags sem hefur það hlutverk að fjármagna og byggja svokallaðan nýjan spítala, það er hluta af spítalanum, og það kemur ekki inn á fjárlög á nokkurn hátt heldur er þetta fjármagnað með hjálp lífeyrissjóðanna." segir Björn. Hann segir umræðu á borð við þá sem birtist í grein Eyþórs ósanngjarna. „Landspítali er spítali allra landsmanna. Þetta er sérhæft sjúkrahús. Hingað eru sjúklingar sendir þegar lokað er annars saðar er lokað eða ekki hægt að veita þjónustu annars staðar." Í fyrirlestri í Landspítalanum í gær fjallaði Björn um fjárheimildir til sjúkrahúsa og sjúkrastofnanna út frá tölum frá Hagstofunni. Þar benti hann á að fjárheimildir til Landspítala hafa lækkað í átta ár eða frá árinu 2002. Á sama tíma hafa þær hins vegar vaxið á öðrum heilbrigðisstofnunum. Honum þykir því umræða um að verið sér að skera niður á sjúkrastonunum út á landi til að vernda hagsmuni Landspítalans og höfuðborgarbúa á villigötum. Sérstaklega í ljósi þess að á skömmum tíma hefur starfsmönnum fækkað um 627 og ekki er útlit fyrir annað en 80 manns til viðbótar þurfi að hætta innan skamms og einhverjum deildum þurfi að loka.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira