Innlent

HH: Umboðsmaður skuldara mús í mannheimum

Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara. „Umboðsmaður skuldara er lítið annað en leppur fjármálafyrirtækjanna til að afklæða fólk síðustu spjörunum,“ segir stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna.
Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara. „Umboðsmaður skuldara er lítið annað en leppur fjármálafyrirtækjanna til að afklæða fólk síðustu spjörunum,“ segir stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna. Mynd/Valli
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna segist hafa verið dregin á asnaeyrunum í tvær vikur af getulausu stjórnkerfi. Stjórnin vandar stjórnmálamönnum, Samtökum atvinnulífsins, ASÍ og umboðsmanni skuldara ekki kveðjurnar á vefsíðu samtakanna. Þau segja umboðsmanna skuldra mús í mannheimum og að ASÍ hafi tekið sér stöðu með forkólfum spillingar.

„Það glæddist með okkur smá von er fulltrúar okkar urðu vitni að því þegar hver stjórnmálamaðurinn á fætur öðrum húðskammaði forkólfa fjármálakerfisins á fundi í Þjóðmenningarhúsinu á miðvikudagskvöld. Þeir voru reiðir, það fór ekkert á milli mála. Þeir voru reiðir af því þeir voru að fá hitann frá almenningi. Hita vegna afglapa og þvermóðsku fjármálaaðalsins."

Stjórnin spyr hvort ríkisstjórnin láti ASÍ og Samtök atvinnulífsins segja sér fyrir verkum. „Hvaða hótunum ætli þeir hafi beitt? Vita félagsmenn þessara samtaka af því hvað forystan aðhefst? Ekki þarf að fjölyrða um það að afstaða ASÍ eftir hrunið hefur verið HH mikil vonbrigði."

Þá segir stjórnin stjórnin: „Línurnar skýrðust verulega á fundinum á miðvikudag. Það er alveg á hreinu hverjir eru á móti heimilum almennings og hverjir með. Umboðsmaður skuldara er lítið annað en leppur fjármálafyrirtækjanna til að afklæða fólk síðustu spjörunum áður en það er leitt nakið í 3 til 5 ára þrælkun fyrir fjármálafyrirtækin. Í besta falli er Umboðsmaður skuldara mús í mannheimum. Gagnslaus fyrir skuldara, röng manneskja á röngum stað. ASÍ tók skýra afstöðu gegn heimilunum. Þeir hafa skipað sér í lið með forkólfum auðvalds og spillingar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×