Flóahreppur braut lög með brottrekstri 1. september 2010 05:00 Hart var deilt um fyrirhugaða Urriðafossvirkjun í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Nýtt framboð sem var andsnúið virkjuninni varð undir í kosningunum.Fréttablaðið/Anton
Flóahreppur braut ítrekað lög þegar sveitarstjórn hreppsins vék formanni umhverfisnefndar hreppsins frá og skipaði nýjan formann stuttu fyrir aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna í vor, samkvæmt úrskurði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Sveitarstjórnin ákvað á fundi sínum 17. mars síðastliðinn að víkja Almari Sigurðssyni úr embætti formanns umhverfisnefndar, eins og fjallað var um í Fréttablaðinu á þeim tíma. Almar kærði brottvikninguna til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. „Þetta er bara eitt dæmi um vinnubrögðin sem viðgengust hjá þáverandi sveitarstjórn,“ segir Almar. Hann segir málinu lokið af sinni hálfu, en það sé ágæt áminning fyrir sveitarstjórnarfólk um að vanda sig í sínum mikilvægu störfum. Í úrskurði ráðuneytisins kemur fram að ekki sé neitt athugavert við að sveitarstjórn skipti um fulltrúa í nefndum verði trúnaðarbrestur. Framkvæmdin var hins vegar ekki í samræmi við sveitarstjórnarlög. Í aðdraganda kosninga kom fram nýtt framboð í Flóahreppi. Að því stóð hópur fólks sem var andsnúinn Urriðafossvirkjun. Hart var tekist á um virkjanamál fyrir kosningarnar, og virðist brottrekstur Almars hafa verið hluti af þeim deilum. Í fundargerð sveitarstjórnar þar sem ákveðið var að víkja Almari frá kemur fram að hann hafi tilkynnt um framboð gegn sitjandi sveitarstjórn. Var vísað í tvö viðtöl við Almar í Fréttablaðinu, þar sem hann var titlaður „einn aðstandenda“ nýs framboðs. Almar mótmælti því að hafa lýst yfir framboði, og var hvergi á lista í sveitarstjórnarkosningunum. Eiginkona hans leiddi hins vegar lista fólks sem fór fram gegn sitjandi sveitarstjórn. Í úrskurði ráðuneytisins kemur fram að sveitarstjórnin virðist hafa byggt ákvörðun sína á túlkun sinni á fréttum Fréttablaðsins, í stað þess að sannreyna þann skilning sinn að Almar væri sjálfur á leið í framboð. Samkvæmt úrskurðinum var sveitarstjórninni ekki heilmilt að víkja honum frá án þess að staðreyna upplýsingarnar. Í kjölfar brottvikningar Almars kaus sveitarstjórnin nýjan formann umhverfisnefndar. Þar braut sveitarstjórnin aftur lög, þar sem þau kveða á um að þurfi að kjósa fulltrúa í ráð eða nefnd skuli kjósa í nefndina alla að nýju. Vegna þessa var skipan í nefndina ólögmæt. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Fleiri fréttir Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Sjá meira