Slökkviliðsmenn samþykktu nýjan kjarasamning 31. ágúst 2010 11:59
Kjarasamningur slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við launanefnd sveitarfélaga var samþykktur naumlega í atkvæðagreiðslu sem lauk um hádegi í gær. Samningurinn var því samþykktur naumlega og boðuðum verkfallsaðgerðum hefur verið aflýst. Kjarasamningur Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) við launanefnd sveitarfélaga (LN) var samþykktur naumlega í almennri atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna LSS en atkvæðagreiðslu lauk á hádegi í gær. Samningurinn var undirritaður 20. ágúst sl. en hann byggir á tillögu sem ríkissáttasemjari lagði fram þegar viðræður virtust enn og aftur vera að sigla í strand. Slökkviliðsmenn samþykktu nýjan kjarasamning með 9 atkvæða mun. Alls voru 237 á kjörskrá. Atkvæði greiddu 213 eða 90 prósent. Já sögðu 109 (51%) Nei sögðu 100 (47%) Auðir seðlar og ógildir voru 4 (2%) Samningurinn var því samþykktur naumlega og boðuðum verkfallsaðgerðum hefur verið aflýst. „Það er ástæða til að fagna þessari góðu kjörsókn en að sama skapi ber að túlka þennan nauma mun sem skýr skilaboð til forsvarsmanna LSS um að grípa miklu fyrr til aðgerða, í því skyni að ná nýjum kjarasamningi. Þá er ljóst í mínum huga að andstaða félagsmanna við nýgerðan kjarasamning skýrist meðal annars af því að samningurinn er ekki afturvirkur en eldri samnningur rann út 31. ágúst 2009 eða fyrir réttu ári. Meðan aðrir náðu fram launahækkunum báru félagsmenn LSS skarðan hlut frá borði," segir Valdimar Leó Friðriksson, framkvæmdastjóri LSS. Samningur LSS við LN gildir frá 1. ágúst 2010 til 30. nóvember 2010. Undirbúningur fyrir gerð nýs kjarasamnings hefst því á allra næstu dögum. „Að fenginni reynslu er fátt sem bendir til annars en að framundan séu erfiðar viðræður við LN. Það er sorglegt að grípa þurfi til verkfallsaðgerða til að fá viðsemjendur að samningaborði. Ef það er vinnulag sem LN ætlar að viðhafa, blasa við verkfallsaðgerðir af okkar hálfu strax í desember," segir Valdimar Leó.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Fleiri fréttir Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Sjá meira