Beinagrind steypireyðarinnar á Skaga bjargað 31. ágúst 2010 19:07
Umhverfis- og menntamálaráðherra fengu samþykkta tveggja milljóna króna fjárveitingu á ríkisstjórnarfundi í morgun til að bjarga beinagrind steypireyðarinnar sem rak á land á Skaga fyrir norðan á dögunum. Steypireyður er alfriðuð skepna en hún er talin vera stærsta dýr sem lifað hefur á jörðinni. Þar sem hvalurinn er alfriðaður er ekki hlaupið að því að verða sér út um beinagrind úr honum. En á mánudaginn í síðustu viku fannst hræ af um tuttugu og þriggja metra langri steypireyð við eyðibýlið Ásbúð á Skaga. Umhverfis og menntamálaráðherra hfa nú gripið til ráðstafana svo bjarga megi beinagrind hvalsins. „Sem er auðvitað merkilegt dýr og stærsta spendýr jarðar. Við erum með tillögu um það hvernig megi varðveita beinagrindina," Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra.Svandís Svavarsdóttir.„Náttúrufræðistofnun Íslands hefur þegar hafið vinnu við það og mun forða beinunum og setja þau í varðveislu þannig að við getum í fyllingu tímans, vonandi á góðum stað, haft þau til sýnis og fræðslu fyrir almenning. Ég neita því ekki að þetta er með skemmtilegri málefnum sem við höfum haft á borði ríkisstjórnar, það er að segja hvalreka," segir Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra. Gífurlegt magn af kjöti og grút fylgir hræinu sem þarf að losna við og segir umhverfisráðherra að farið verði eftir reglum um förgun slíkrar mengunar. Ríkisstjórnin mun leggja tvær milljónir króna til verksins. „En ég held líka fræðslugildið sé ómetanlegt bæði fyrir íslensk skólabörn og erlenda ferðamenn sem hingað koma," segir Katrín. Ráðherrarnir segja að ekki liggi fyrir hvar beinagrindinni verði komið fyrir.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira