Innlent

Fiskverð hagstætt - mjölverð enn hagstæðara

Verð á íslenskum sjávarafurðum, meðaltal allra afurðaflokka, mælt í erlendri mynt, hækkaði um 1,5 prósent í júlí síðastliðnum. Þetta byggir á útreikningi IFS miðað við tölur um framleiðsluverð í júlí sem Hagstofan birti fyrir helgi.

Þar segir að afurðaverð á erlendum mörkuðum hefur verið í hægu hækkunarferli síðustu mánuðina. Nú hefur verðið hækkað um 6,6% síðustu 12 mánuði. Tölurnar undanfarna mánuði sýna að aðstæður á mörkuðum erlendis hafa náð ágætu jafnvægi. Þó er ástandið innan einstakra afurðaflokka misjafnt. Á heildina litið er afurðaverð mjög ásættanlegt fyrir íslensku sjávarútvegsfyrirtækin.

Verð á fiskimjöli er enn hátt eða 1.550 bandaríska dollara á tonnið. Hæst fór verðið í rétt um 2.000 dollarar á tonnið fyrr á árinu. Mjölverðið er hátt í sögulegu samhengi og hagstætt fyrir framleiðendur.

Verð á sjófrystum botnfiskafurðum hefur hækkað í verði undanfarna mánuði og er nokkuð hagstætt fyrir íslensku sjávarútvegsfyrirtækin.

Verð á saltfiski hefur hækkað lítillega undanfarið. Efnahagsástand á mikilvægum mörkuðum í S-Evrópu (Spánn, Portúgal) er þó viðkvæmt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×