Innlent

Síbrotamaður tekinn úr umferð

Ungur ökumaður var nýverið stöðvaður eftir að hafa mælst á 117 kílómetra hraða innanbæjar á Selfossi, þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar á klukkustund.

Þetta er sami ökumaðurinn og var stöðvaður fyrir rúmu ári fyrir að aka á rúmlega 80 kílómetra hraða innanbæjar, þar sem hámarkshraði er aðeins 30 kílómetrar á klukkustund.

Þegar það gerðist var aðeins mánuður liðinn frá því að hann tók bílpróf, og missti hann ökuréttindin í fimm mánuði fyrir það brot. Hann mun að öllum líkindum missa það aftur og líklega lengur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×