Innlent

Fundu spænskan ferðamann

Björgunarsveitarmenn frá Hellu fundu í gærkvöldi spænskan ferðamann á bílaleigubíl, sem hafði orðið bensínlaus inni á hálendinu i fyrrinótt.

Með því að ganga upp á hól náði hann farsímasambandi og óskaði eftir hjálp, en gaf upp rangar GPS staðsetningartölur þannig að það dróst á langinn að hann finndist.

En loks var hægt að miða út staðsetningu á farsíma hans. Maðurinn var heill á húfi, en afar feginn að fá hjálp þarna í einverunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×