Innlent

Endurgreiði ferð sem aflýst var í eldgosinu

gar@frettabladid.is skrifar
Aflýsa þurfti flugi Expressferða til Berlínar hinn 16. apríl því flugvöllurinn var lokaður vegna gossins í Eyjafjallajökli.
Aflýsa þurfti flugi Expressferða til Berlínar hinn 16. apríl því flugvöllurinn var lokaður vegna gossins í Eyjafjallajökli.

Ferðalangur sem keypti pakkaferð til Berlínar í apríl í vor á að fá alla ferðina endurgreidda en ekki aðeins flugið eins og Expressferðir vildu. Þetta er niðurstaða Neytendastofu.

Lilja Hilmarsdóttir, rekstrarstjóri hjá Expressferðum, sem er í eigu Iceland Express, segir ekki tímabært að tjá sig um niðurstöðu Neytendastofu. Farið verði yfir málið með lögfræðingum í dag.

Umrædd ferð átti að vera til Berlínar 16. apríl. Þar var ætlunin að gista á hóteli í þrjár nætur. Lilja segir að allt fram á síðustu stundu hafi verið vonast til að hægt yrði að lenda í Berlín. Reyndin hafi þó orðið sú að lokað var fyrir flugumferð í Berlín og úti um allt í Evrópu þennan dag.

Expressferðir buðu farþegunum að fá flughlutann endurgreiddan eða að fá sams konar ferð og greiða 25 þúsund krónur til viðbótar. Einn farþeginn sætti sig við hvorugan kostinn og leitaði til Neytendasamtakanna sem kærðu málið til Neytendastofu. Að sögn Lilju kostaði umrædd ferð um 83 þúsund krónur. Um helmingurinn hafi verið vegna gistingarinnar.

„Við reyndum að tala við hótelið en þeir bentu á að við værum með 34 herbergi sem þeir gætu ekki selt og spurðu hvernig okkur dytti þá í hug að við fengjum endurgreitt. Þannig að við sátum uppi með allan kostnað við ferðina," útskýrir Lilja sem kveður langflesta viðskiptavinina hafa verið sátta við það hvernig Expressferðir tóku á málinu. „Fólk skildi þetta mjög vel."

Þetta var eina ferðin sem Expressferðir þurftu að aflýsa vegna gossins en aðrar ferðaskrifstofur og flugfélög hérlendis þurftu vitanlega að fella niður margar ferðir. Lilja kveður um algerlega einstakt mál að ræða. Búast megi við að endanleg niðurstaða þess verði fordæmisgefandi.

„Spurningin er hvort allur kostnaður eigi eingöngu að falla á ferðaskrifstofuna eða flugfélögin," segir hún. Í umfjöllun Neytendastofu kemur fram það sjónarmið Expressferða að þar sem fluginu hafi verið aflýst vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna - svokallaðs „force majeure" bæri ferðaskrifstofunni ekki að endurgreiða ferðina alla. Var þar meðal annars vísað í greinargerð laga um alferðir.

Neytendastofa segir hins vegar misræmi milli greinargerðarinnar og lagatextans sjálfs sem sé skýr um þetta atriði. Endurgreiða beri slíkar „alferðir" að fullu óháð því hvers vegna þeim er aflýst. Á hinn bóginn eigi viðskiptavinir ekki rétt á skaðabótum fyrir aukaútgjöld tengd ferðinni ef aflýst er vegna ófyrirsjánlegra aðstæðna.

gar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×