Er sáttur eftir krefjandi ár 9. febrúar 2010 06:00 Marel getur vel við unað þrátt fyrir tap á síðasta ári, segir forstjóri fyrirtækisins. Fréttablaðið/stefán „
Staðan er mjög góð og mun aðeins batna á næstunni,“ segir Theo Hoen, forstjóri Marel. Hann bætir við að alþjóðlega fjármálakreppan hafi gert flestum fyrirtækjum erfitt fyrir á síðasta ári. Geti Marel vel við unað. „Ég er sáttur,“ segir hann. Fyrirtækið tapaði 11,8 milljónum evra, jafnvirði tveggja milljarða króna, á síðasta ári. Þetta er undir væntingum. Hoen segir stjórnendur hafa reiknað með erfiðu ári og hafi þeir gripið til aðgerða. Á meðal þeirra hafi verið aukning hlutafjár þar sem hluta tiltekinna skuldabréfaflokka Marel hafi verið breytt í hlutafé, en við það fóru skuldir niður. Þá hafi verið samið um sölu eigna utan kjarnastarfsemi og verði því haldið áfram. Þar á meðal er sala á eignum tengdum mjólkur- og drykkjarvörugeiranum sem heyrði undir matvælavinnsluvélahluta Stork, Stork Food Systems, áður en Marel keypti fyrirtækið fyrir tveimur árum. Theo stýrði Stork Food Systems áður en hann tók við forstjórastól Marel í fyrravor. Theo bendir á að forskot Marel skýrist ekki síst af því að fyrirtækið hafi ekki dregið úr framlagi til rannsóknar og þróunar í kreppunni. Það hafi keppinautarnir gert og kunni þeir að dragast aftur úr í samkeppninni af þeim sökum. - jab
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira