Lífið

Möguleg gifting

Nicole Richie og Joel Madden munu ef til vill ganga í það heilaga um helgina.
nordicphotos/getty
Nicole Richie og Joel Madden munu ef til vill ganga í það heilaga um helgina. nordicphotos/getty

Orðrómur þess efnis að Nicole Richie og Joel Madden ætli að ganga í það heilaga er aftur kominn á kreik. Samkvæmt Hollywood Life mun brúðkaupið eiga sér stað á morgun á heimili föður Richie.

Athöfnin verður að sögn heimildarmanna lítil og innileg og hefur parið ákveðið að bjóða aðeins sínum nánustu. Dóttir parsins verður hringberi og tvíburabróðir Maddens verður svaramaður. „Hún bauð ekki nokkrum Hollywoodvinum sínum og margir urðu ansi fúlir vegna þess,“ sagði heimildamaðurinn. Samantha Ronson og Christina Aguilera verða þó á gestalistanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.