Innlent

Sérfræðingur í samningatækni fenginn til ráðgjafar

Stjórn og stjórnarandstaða eru að ná saman um það á hvaða forsendum nýjar viðræður verða við Breta og Hollendinga, ef þær verða að raunveruleika. Lee Bucheit, bandarískur sérfræðingur í samningatækni og alþjóðalögum kemur væntanlega til landsins á morgun til ráðgjafar.

Fundað var um Icesave-málið í fjármálaráðuneytinu í dag. Þar voru þeir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon ásamt forystumönnum stjórnarandstöðunnar.

Buchheit hefur áður fjallað um Icesave samninginn en hann mætti fyrir fjárlaganefnd þegar málið var til umræðu þar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×