Forsetinn veitti Íslensku menntaverðlaunin 8. júní 2010 20:21 Ólafur Ragnar Grímsson forseti.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, veitti Íslensku menntaverðlaunin í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi í kvöld en þau eru bundin við grunnskólastarfið og eru veitt í fjórum flokkum, segir í tilkynningu. Í flokki skóla sem sinnt hafa vel nýsköpun eða farsælu samhengi í fræðslustarfi hlaut verðlaunin Lækjarskóli í Hafnarfirði. Í umsögn dómnefndar segir m.a.: Skólastarfið í Lækjarskóla á sér langa og farsæla sögu sem hefur mótast í samræmi við aðstæður á hverjum tíma. Starfsemi skólans einkennist af metnaði og samvinnu þar sem nemendur eru í brennidepli. Nám við skólann er í stöðugri þróun og beinist að því að koma til móts við þarfir sem flestra og þjóna Hafnfirðingum sem best.Skilað merku ævistarfi Í flokki kennara sem skilað hafa merku ævistarfi eða á annan hátt skarað framúr hlaut verðlaunin Ragnheiður Hermannsdóttir kennari í Háteigsskóla, áður Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraháskóla Íslands. Í umsögn dómnefndar segir m.a.: Ragnheiður miðlaði um árabil kennaranemum af reynslu sinni og hæfni og einnig hefur hún veitt starfandi kennurum víðsvegar um land hlutdeild í list sinni og galdri sem hún býr yfir sem kennari.Ungur kennari Í flokki ungra kennara sem í upphafi kennsluferils hafa sýnt hæfileika og lagt alúð við starf sitt hlaut verðlaunin Linda Heiðarsdóttir kennari í Laugalækjarskóla í Reykjavík. Í umsögn dómnefndar segir m.a.: Linda hefur mikinn metnað fyrir hönd skólans og hefur verið drifkraftur í innra starfi hans. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún áunnið sér traust þeirra sem hún vinnur með og aðrir kennarar sækjast eftir að vinna með henni. Hún hikar heldur ekki við að tjá stjórnendum skólans skoðanir sínar - ávallt með faglegan metnað að leiðarljóst.Nýjungar í skólastarfi Í flokki höfunda námsefnis sem stuðlað hafa að nýjungum í skólastarfi hlaut verðlaunin Iðunn Steinsdóttir rithöfundur. Í umsögn dómnefndar segir m.a.:Að mati dómnefndar eru bækur Iðunnar námsefni sem á lifandi og nýstárlegan hátt færir nýrri kynslóð íslenskra barna arf sem lifað hefur með þjóðinni um aldaraðir og vekur áhuga þeirra á eigin uppruna og menningarheimi.Dómnefndir Tvær dómnefndir hafa starfað í aðdraganda verðlaunaveitingarinnar. Í þeirri dómnefnd sem fjallaði um tilnefningar í fyrsta og fjórða flokki, þ.e. skóla og námsefni, sátu: • Ellert Borgar Þorvaldsson, skólastjóri Ártúnsskóla • Svafa Grönfeldt, fv. rektor Háskólans í Reykjavík • Börkur Hansen, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands • Finnur Friðriksson, lektor við Háskólann á Akureyri • Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri Dalvíkur. Í dómnefnd sem fjallaði um tilnefningar í öðrum og þriðja flokki, þ.e. kennara, sátu: • Hafrún Dóra Júlíusdóttir, fv. formaður skólanefndar Hafnarfjarðar • Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðsstjóri • Ólafur H. Jóhannsson, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands • Valgeir Gestsson, fv. skólastjóri • Ragna Ólafsdóttir, fv. skólastjóri.
Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Fleiri fréttir Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Sjá meira