Innlent

Foreldrar hafa ekki efni á að láta ferma

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ólafur Jóhannsson segir að flestir prestar sýni því skilning ef foreldrar geti ekki borgað. Mynd/ Teitur.
Ólafur Jóhannsson segir að flestir prestar sýni því skilning ef foreldrar geti ekki borgað. Mynd/ Teitur.
Dæmi eru um að fólk sé svo illa statt fjárhagslega að það hafi ekki efni á því að láta ferma börnin sín, segir Ólafur Jóhannsson, formaður Prestafélags Íslands. Hann segir að dæmi um þetta hafi þekkst áður en þeim hafi ef til vill fjölgað núna í efnahagskreppunni.

Við allt umstangið sem tengist veisluhöldum þurfa foreldrar einnig að standa skil á greiðslum til prestsins. Ólafur sagði í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag að slikar greiðslur hafi tíðkast um áratugabil. Undanfarin ár hafi verið reynt að finna leiðir til þess að fella þessa innheimtu niður en ekki hafi tekist að finna fyrirkomulag sem allir gætu fellt sig við. „Það yrði ákaflega gott að losna við þessar sérgreiðslur. Ég held það yrðu allir ánægðir með það, bæði prestar og foreldrar," segir Ólafur.

Ólafur segir að flestir prestar sýni því skilning ef foreldrar geti ekki borgað. Hins vegar hafa heyrst dæmi um það að prestar gangi svo hart í innheimtu að þeir sendi fermingarbörnunum sms skilaboð og beðið þau um að minna foreldra sína um að standa skil á greiðslunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×