Hreyfingin segist ekkert fundarboð hafa fengið 6. október 2010 13:37 Baldvin Jónsson situr á þingi fyrir Hreyfinguna í fjarveru Birgittu Jónsdóttur
Þingmenn Hreyfingarinnar segjast ekki hafa verið boðuð á fund forsætisráðherra með stjórnarandstöðunni í morgun. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem þeir hafa sent frá sér. Þar segir að þingmenn Hreyfingarinnar, þau Baldvin Jónsson, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari, hafi fullan vilja til samstarfs um raunverulegar lausnir í landinu og blása þau á yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um áhugaleysi stjórnarandstöðunnar. „Forsætisráðherra boðaði talsmenn allra stjórnmálasamtaka sem eiga fulltrúa á Alþingi á sinn fund í gær. Á fundinum lagði Þór Saari það til að ráðist yrði í almenna leiðréttingu lána, að verðtrygging yrði afnumin, að lyklafrumvarpið yrði samþykkt, að uppboð sem fram hafa farið á grundvelli ólögmætra krafna verði látin ganga til baka og að ekki yrði hægt að halda kröfum endalaust við eftir gjaldþrot. Þá lagði hann til að nauðungarsölum yrði frestað. Að endingu lagði Þór til að þessi áform yrðu tímasett og þeim hrint í framkvæmd. Í framhaldinu yrðu kosningar tímasettar. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar sáu ekki ástæðu til að nálgast málin út frá þessu sjónarhorni," segir í yfirlýsingunni. Þingmenn Hreyfingarinnar vísa í Fréttablaðið í dag og segjast þar hafa lesið að boðað hafi verið til fundar með stjórnarandstöðunni klukkan níu í morgun en þeir ekki fengið neitt boð á þann fund.
Tengdar fréttir Stjórnarandstaðan mætti ekki á fund ráðherra Enginn fulltrúi stjórnarandstöðunnar á Alþingi mætti á fund með fimm ráðherrum í morgun þar sem átti að ræða aðgerðir til þess að koma til móts við skuldavanda heimilanna. Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekkert fundarboð hafa fengið. Hrannar B. Arnarson aðstoðarmaður forsætisráðherra segir hinsvegar að stjórnarandstaðan hafi verið boðuð á fundinn að loknum fyrsta fundi hópsins sem haldinn var í gær. 6. október 2010 10:52 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira
Stjórnarandstaðan mætti ekki á fund ráðherra Enginn fulltrúi stjórnarandstöðunnar á Alþingi mætti á fund með fimm ráðherrum í morgun þar sem átti að ræða aðgerðir til þess að koma til móts við skuldavanda heimilanna. Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekkert fundarboð hafa fengið. Hrannar B. Arnarson aðstoðarmaður forsætisráðherra segir hinsvegar að stjórnarandstaðan hafi verið boðuð á fundinn að loknum fyrsta fundi hópsins sem haldinn var í gær. 6. október 2010 10:52